Valur Helgason
  • Heimili Sveitarfélög & Fyrirtæki Góð ráð
  • Umfjallanir
  • Hafa samband
  • Um okkur

Valur Helgason

  • Þjónusta/
    • Heimili
    • Sveitarfélög & Fyrirtæki
    • Góð ráð
  • Umfjallanir/
  • Hafa samband/
  • Um okkur/

Valur Helgason

Um okkur

Valur Helgason

  • Þjónusta/
    • Heimili
    • Sveitarfélög & Fyrirtæki
    • Góð ráð
  • Umfjallanir/
  • Hafa samband/
  • Um okkur/

Um okkur

Fyrirtækið Valur Helgason hefur síðastliðna hálfa öld safnað mikilli reynslu og sérþekkingu á öllum þáttum er viðkoma frárennslislagnir fyrirtækja, stofnana og heimila.

Nánari upplýsingar um fyrirtækið, starfsfólk, tækjabúnað, gildi og umhverfisstefnu þess er að finna á undir flipanum “Um fyrirtækið” hér að ofan.

Almennar upplýsingar

Valur Helgason ehf. hefur safnað mikilli reynslu og þekkingu á stíflulosun, röramyndatökum, rótarfræsingum og ýmsum öðrum þáttum er viðkoma frárennslislagnir fyrirtækja, stofnana og heimila. Fyrirtækið hefur verið starfrækt í um hálfa öld. Valur Helgason ehf. ber nafn stofnanda síns en árið 2002 keyptu þau Ragnar Kummer og Þóra Björk Sigurþórsdóttir fyrirtækið. Ragnar hafði þá verið einn af lykilstarfsmönnum þess um árabil.

Þjónusta fyrirtækisins er margþætt en við sérhæfum okkur meðal annars í að fjarlægja stíflur til dæmis úr eldhús- og baðvöskum, salernisrörum, baðkerum, niðurföllum, þaklögnum og drenlögnum auk fjölþættrar þjónustu við sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki.

Valur Helgason ehf. er staðsett í eigin húsnæði að Gylfaflöt 13, 112 Reykjavík. Símar fyrirtækisins eru 568 8806 og 896 1100. Netfangið er stifla@stifla.is.

Fyrirtækið leggur áherslu á að bjóða stuttan biðtíma á höfuðborgarsvæðinu og að stafsfólkið beri virðingu fyrir eignum þínum, heimili og tíma.

Starfsfólk

Ragnar Kummer, framkvæmdastjóri og eigandi

Þóra Björk Sigurþórsdóttir, skrifstofustjóri og eigandi

Rósar Guðnason, vélamaður

Sigurþór Ragnarsson, bifvélavirki og vélamaður

Bílar og tækjabúnaður

Valur Helgason ehf. vinnur eingöngu með fyrsta flokks tækjabúnað og eru starfsmenn fyrirtækisins vel tækjum búnir. Fyrirtækið á nokkrar sérhæfðar bifreiðar með öflugum útbúnað til stíflulosunar og  fullkomnustu röramyndavélar sem í boði eru á markaðnum. Allt frá örsmáum vélum sem komast niður í eldhúsvaska yfir í hitamyndavélar. Myndavélarnar eru með staðsetningarbúnaði og dýptarmælum sem staðsetja bilanir, stíflur, falin niðurföll o.þ.h. af mikilli nákvæmni.

Gildi

Gildi Vals Helgasonar ehf. eru:

Fagmennska – Þekking – Traust

Með þessi hugtök að leiðarljósi grundvallar starfsfólk fyrirtækisins þjónustuna við viðskiptavini.

Umhverfisstefna

Valur Helgason ehf. stuðlar að góðri umgengni og verndun umhverfisins t.d. með því að farga spilliefnum á réttan hátt, minnka eins og frekast er kostur notkun mengandi efna og koma í veg fyrir hvers konar sóun.

Valur Helgason ehf. hefur ADR vottun fyrir spilliefni.




  • Þjónusta/
    • Heimili
    • Sveitarfélög & Fyrirtæki
    • Góð ráð
  • Umfjallanir/
  • Hafa samband/
  • Um okkur/

Valur Helgason

Stífluþjónusta

.

Valur Helgason ehf. Heimilisfang: Bæjarflöt 15, Gylfaflötsmegin Sími: 896 1100